Síðasta einvígi átta liða úrslita 1. deildar karla hefst í kvöld þegar Breiðablik og Skallagrímur mætast í Smáranum klukkan 19:15.
Mikil spenna er fyrir leiknum, en í gær tryggðu Selfoss, KV og Sindri sér öll mikilvæga 1-0 forystu í sínum einvígjum. Nú er komið að Blikum og Borgnesingum að stíga sín fyrstu skref í úrslitakeppninni í baráttunni um sæti í undanúrslitum.
Leikur dagsins
Fyrsta deild karla – 8 liða úrslit
Breiðablik Skallagrímur – kl. 19:15





