spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2025Síðast unnu þeir með 27 stigum

Síðast unnu þeir með 27 stigum

Ísland mætir Slóveníu kl. 15:00 að íslenskum tíma í dag í fjórða leik sínum á lokamóti EuroBasket í Katowice.

Fyrir leikinn hefur Slóvenía unnið einn leik og Ísland engan, því mikilvægt fyrir bæði lið að ná í sigur í dag.

Sögulega hefur Ísland ekki oft leikið gegn Slóveníu. Þeir léku þó einusinni gegn þeim, á lokamóti EuroBasket 2017 í Helsinki í Finnlandi.

Þá hafði Slóvenía nokkuð öruggan 27 stiga sigur, en þeir héldu áfram að vinna á mótinu eftir leikinn gegn Íslandi og hömpuðu að lokum Evrópumeistaratitlinum.

Hér fyrir neðan má sjá það helsta úr leiknum

Fréttir
- Auglýsing -