spot_img
HomeFréttirSíðast þegar það var engin úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn í efstu deild karla

Síðast þegar það var engin úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn í efstu deild karla

Úrslitakeppni hefur verið haldin í efstu deild karla um Íslandsmeistaratitilinn síðan árið 1984. Síðan þá eru sigursælust Njarðvík og KR, hvort með ellefu titla, en Keflavík er rétt fyrir neðan þau með níu. Þá hefur Grindavík unnið þrjá og Haukar og Snæfell hvort einn.

Íslandsmeistaratitlar eftir úrslitakeppni:

11 – Njarðvík og KR

9 – Keflavík

3 – Grindavík

1 – Haukar og Snæfell

Vegna Covid-19 faraldursins var keppni aflýst í Dominos deild karla þetta tímabilið. Stjarnan hafði ekki tryggt sér deildarmeistaratitilinn þegar að mótið var blásið af, en fengu hann þrátt fyrir að Keflavík gæti ennþá unnið hann. Þá var ákvörðun tekin um að enginn Íslandsmeistari yrði krýndur þetta árið. Það mun því vera í fyrsta skipti síðan árið 1983 sem að engin úrslitakeppni er haldin, en hér fyrir neðan má sjá aðra áhugaverða hluti sem gerðust eða einkenndu árið.

Ronald Reagan var leiðtogi hins frjálsa heims

Rás 2 hóf útsendingar

Nýtt Líf var frumsýnd

Michael Jackson kynnti „tunglgönguna“ til sögunnar

Kvótakerfið var samþykkt á Alþingi

Liverpool voru Englandmeistarar og Ian Rush markahæstur í deildinni

“Every Breath You Take” með The Police var vinsælasta lag ársins

Vilhjálmur Árnason varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins fæddist á Sauðárkróki

Aðeins 4.72 miljarðar bjuggu á Jörðinni

Philadelphia 76ers voru heimsmeistarar í NBA deildinni

Fréttir
- Auglýsing -