HomeFréttirShouse hvílir á mánudag

Shouse hvílir á mánudag

Justin Shouse verður ekki í leikmannahópi Stjörnunnar næstkomandi mánudag þegar liðið mætir Breiðablik í Reykjanesmótinu en hann tognaði lítillega gegn Haukum í síðasta leik.
Shouse fór af velli í leik Hauka og Stjörnunnar þegar næstum 15 mínútur voru til leiksloka og kom ekki meira við sögu en það kom ekki að sök þar sem Stjarnan vann öruggan 15 stiga sigur í leiknum. Garðbæingar búast við því að Shouse verði fljótur að jafna sig og komi von bráðar í búning á nýjan leik.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -