Það ríkti mikil eftirvænting á Meistaravöllum í gærkvöldi þegar KR tók á móti Njarðvík í næstsíðustu umferð Úrvalsdeildar kvenna.
Fyrir leikinn var ljóst að KR-konur þurftu á sigri að halda til að halda örlögum sínum í eigin höndum í baráttunni um deildarmeistaratitilinn. Eftir sveiflukenndan leik tókst Vesturbæjarliðinu að knýja fram öruggan 89–70 sigur eftir frábæran síðari hálfleik.
Karfan spjallaði við Daníel Andra Halldórsson þjálfara KR eftir leik á Meistaravöllum.





