Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik mætti sterku liði Serbíu í undankeppni EuroBasket 2027 þar sem mikið var undir fyrir bæði lið. Serbneska liðið, sem skipað er öflugum leikmönnum úr efstu deildum Evrópu, sýndi styrk sinn og vann að lokum öruggan sigur, 92–66. Með þessum úrslitum tryggði Serbía sér efsta sæti riðilsins og þar með sæti í næsta fasa undankeppninnar, en íslenska liðið heldur áfram sinni baráttu í undankeppninni.
Leikurinn hófst af miklum krafti en íslenska liðið varð fyrir talsverðu áfalli strax á upphafsmínútunum. Þegar lítið var eftir af fyrsta fjórðung meiddist Kolbrún María Ármannsdóttir og þurfti hún að yfirgefa völlinn og kom ekkert meira við sögu í leiknum. Þetta breytti einhverju fyrir íslenska liðið en hún hafði farið vel af stað í upphafi. Íslenska lið var þó yfir eftir fyrsta leikhluta, 20-26.
Serbneska liðið nýtti reynslu sína og breidd til að ná undirtökunum í framhaldinu. Varnarleikur Serbíu var agaður og þeir refsuðu íslenska liðinu fyrir hver mistök sem gerð voru, sem leiddi til þess að staðan var orðin jöfn í hálfleik, 40-40.

Í síðari hálfleik hélt Serbía áfram að stýra ferðinni og jók forskotið jafnt og þétt með góðri hittni og sterkum leik undir körfunni. Sara Rún Hinriksdóttir varð fyrir hnjaski í seinni hálfleiknum og þurfti að fara af velli um tíma til að hljóta aðhlynningu, en hún sýndi mikla seiglu með því að snúa aftur inn á völlinn stuttu síðar til að klára leikinn með liðsfélögum sínum.
Serbenska liðið fór langleiðina með leikinn í upphafi seinni hálfleiksins og var forskot þeirra komið í 17 stig fyrir lokaleikhlutann. Íslenska liðið nær aldrei að gera almennilega atlögu að forystu heimakvenna í fjórða leikhlutanum, en lengst af leiðir Serbía með í kringum 15 stig áður en þær klára leikinn með öruggum 26 stiga sigri, 92-66.
Sara Rún var atkvæðamest í íslenska liðinu með 21 stig og tók auk þess 6 fráköst á þeim 26 mínútum sem hún spilaði. Aðrir leikmenn lögðu einnig sitt af mörkum í tölfræðinni en Thelma Dís Ágústsdóttir skilaði 12 stigum og Danielle Rodriguez skoraði 10 stig og barðist vel í fráköstunum þar sem hún tók 5 slík.
Þegar litið er til tölfræðilegs samanburðar á liðunum má sjá að helsti munurinn lá í skilvirkni sóknarleiksins og styrk undir körfunni. Serbía nýtti skot sín mun betur en Ísland, sérstaklega innan teigs þar sem liðið skoraði 44 stig á móti 24 stigum Íslands. Serbneska liðið sýndi einnig mikla yfirburði í frákastabaráttunni og tók samtals 48 fráköst á meðan íslenska liðið tók 32, sem gaf gestunum mörg aukatækifæri í sókninni.

Þá var mikill munur á stoðsendingum, en Serbía skilaði 28 stoðsendingum gegn 13 hjá Íslandi, sem sýnir hversu vel boltanum var deilt innan serbneska liðsins. Þrátt fyrir að Ísland hafi sýnt fína baráttu, sérstaklega í upphafi, reyndust gæði og breidd Serbíu á báðum endum vallarins ráða úrslitum í þessum leik.
Seinni leikur þessa annars glugga undankeppninnar er heima í Ólafssal komandi þriðjudag 17. mars gegn Portúgal.





