Þór hefur samið við bakvörðinn og U16 ára landsliðsmanninn Hlyn Inga Finnsson um að leika með liðinu á komandi leiktíð.
Hlynur er 16 ára gamall, 187 sentímetrar á hæð og kemur norður frá Sindra á Höfn í Hornafirði. Hann hefur vakið mikla athygli þrátt fyrir ungan aldur og verið fastamaður í U16 ára landsliði Íslands. Þórsarar bjóða Hlyn innilega velkominn í Þorpið og hlakka til að sjá hann taka næstu skref á ferlinum í rauðu og hvítu búningunum á Akureyri.




