Serbneski miðherjinn Miloš Stajčić hefur skrifað undir eins árs samning við karlalið Stjörnunnar.
Stajčić, sem er 208 sentímetrar á hæð og 109 kíló, getur spilað sem miðherji og kraftframherji. Hann lék í bandaríska háskólaboltanum í NCAA Division 1 með Campbell Fighting Camels og hefur leikið með yngri landsliðum Serbíu, meðal annars á Evrópumóti U20 ára. Undanfarin ár hefur hann leikið í serbnesku úrvalsdeildinni og ABA-deildinni, síðast með KK Vojvodina, áður en hann ákvað að semja við Garðbæinga fyrir komandi leiktíð.




