Semja við Sindra

Sindra hefur gengið frá samningi við bandaríska leikstjórnandann Kaleb Higgins og mun hann leika með liðinu í Bónusdeild karla á komandi tímabili.

Higgins er 178 sentímetrar á hæð, kemur frá Arkansas og á að baki magnaðan feril í bandaríska háskólaboltanum með Cal State Bakersfield í efstu deild (NCAA D1). Á síðasta tímabili sínu þar skoraði hann 17,9 stig að meðaltali í leik, gaf 3,7 stoðsendingar og setti skólamet með því að skora 572 stig á einu tímabili. Hann sýndi oft að hann getur tekið yfir á stórum stundum og skoraði meðal annars 35 stig í úrslitakeppni Big West deildarinnar.

Hjá Hornafjarðarliðinu er mikil ánægja með að fá þennan fljóta og áræðna skorara. Nebo, þjálfari Sindra, segir Higgins koma með mikinn hraða, leikskilning og yfirsýn sem passi fullkomlega inn í það lið sem verið sé að byggja upp á Höfn.

Higgins kveðst sjálfur spenntur og þakklátur fyrir tækifærið til að hefja næsta kafla á sínum ferli og segist tilbúinn að gera allt sem til þarf til að hjálpa liðinu að vinna leiki.

Sindri hefur einnig tilkynnt um ráðningu á lettneska miðherjanum Martins Meiers, sem mun leika með liðinu í Bónusdeild karla á komandi tímabili.

Martins er 208 cm hár og kemur til liðsins með gríðarlega reynslu úr evrópskum körfubolta, en hann hefur meðal annars leikið með lettneska A-landsliðinu og tekið þátt í fjórum EuroBasket-mótum. Á ferlinum hefur hann leikið í tíu mismunandi löndum, þar á meðal í Þýskalandi, Frakklandi og Rússlandi, og unnið meistaratitla í Lettlandi, Póllandi og Eistlandi.

Hjá Sindra er mikil ánægja með að fá leikmann með svo öflugan feril á Hornafjörð. Þjálfarinn Nebo telur að gæði og reynsla Martins muni hjálpa liðinu að ná sem bestum árangri, auk þess sem hann eigi að vera góð fyrirmynd fyrir yngri leikmenn félagsins.

Martins sjálfur kveðst spenntur fyrir því að ganga til liðs við félagið, hlakkar til að koma til Íslands og segist tilbúinn að gefa allt sitt í verkefnið á komandi tímabili.

Fréttir
- Auglýsing -