Njarðvík hefur samið við Róbert Sean Birmingham til ársins 2028.
Róbert hefur verið meiddur síðustu misseri, en samkvæmt tilkynningu eru voni bundnar hann verði aftur mættur á gólfið í byrjun næstu leiktíðar.
Hafsteinn Sveinsson formaður Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur kvaðst stoltur af því að félagið væri að semja til lengri tíma við leikmann úr yngri flokka starfi félagsins. „Eins og mörgum er kunnugt er Róbert Sean mikið efni en hefur verið óheppinn með meiðsli á sínum ferli til þessa. Við höfum fulla trú á því að hann komi sterkur til baka og muni styrkja Njarðvíkurliðið mikið á næstu leiktíð,”
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Róbert Sean komið við á Spáni og í Bandaríkjunum og verið burðarás í liðum yngri landsliða Íslands.




