Bandaríkjamaðurinn Makye Richard leikur með Njarðvík á næstu leiktíð. Þessi 27 ára gamli bakvörður lék á síðasta tímabili í næsteftustu deild Grikklands með AEO Proteas Voulas, þar sem hann skilaði 16 stigum, 4,4 stoðsendingum og 4,8 fráköstum að meðaltali í leik.
Richard segist mjög spenntur og þakklátur fyrir að semja við félagið og vissi strax að Njarðvík væri rétti staðurinn fyrir sig. Hann segist mæta með miklar væntingar til sjálfs síns og stefnir á að verða besti leikmaður deildarinnar, en aðalmarkmiðið sé þó einfalt: að hjálpa liðinu að keppa um titilinn og ná nýjum hæðum á komandi tímabili.




