Grindavík hefur ráðið Lárus Jónsson sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Hann mun starfa sem hægri hönd Jóhanns Þórs Ólafssonar á komandi tímabili.
Lárus kemur með mikla reynslu inn í þjálfarateymið, bæði sem leikmaður og þjálfari, en hann hefur sannað sig sem einn af fremstu körfuboltaþjálfurum landsins. Hjá Grindavík ríkir mikil ánægja með að fá hann í brúna með Jóhanni og telja Suðurnesjamenn sig vera með öflugt teymi fyrir áskoranir vetrarins.
Lárus kveðst sjálfur spenntur fyrir verkefninu, hlakka til samstarfsins og geta ekki beðið eftir að leggja sitt af mörkum til að hjálpa hópnum að ná markmiðum sínum.





