Bjarni Guðmann Jónsson hefur gert nýjan tveggja ára samning við Stjörnuna og mun áfram leika með Garðabæjarliðinu. Bjarni gekk til liðs við félagið fyrir tveimur árum eftir að hafa stundað nám og spilað körfubolta með Fort Hays State University í Bandaríkjunum.
Hann var í lykilhlutverki þegar Stjarnan tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í sögu félagsins á síðasta ári. Bjarni hefur verið mikilvægur hlekkur í liðinu í vetur og sýnt mikinn baráttuanda á vellinum, en forráðamenn og stuðningsmenn fagna því að hafa tryggt krafta hans áfram.



