Semur til tveggja ára

Keflavík hefur gengið frá nýjum samningi við Emelíu Ósk Gunnarsdóttur sem mun leika með liðinu næstu tvö tímabilin.

Í tilkynningu frá félaginu kemur fram rík ánægja með að halda henni innan sinna raða, en hún er sögð mikilvægur hlekkur í liðinu og sannur Keflvíkingur. Forráðamenn og stuðningsmenn hlakka mikið til að sjá hana á parketinu á komandi misserum.

Fréttir
- Auglýsing -