Körfuknattleiksdeild ÍA hefur tryggt sér krafta Gojko Sudzum til næstu þriggja ára, en hann skrifaði nýverið undir samning þess efnis við Akurnesinga. Þessi tíðindi þykja mikið fagnaðarefni fyrir félagið, sérstaklega í ljósi þess að liðið féll úr efstu deild, Bónus deildinni, á nýafstöðnu tímabili.
Sudzum hefur verið lykilmaður í liði ÍA og er ljóst að stjórn deildarinnar ætlar sér beina leið aftur upp á meðal þeirra bestu.




