Craig Pedersen hefur á nýjan leik samið við KKÍ um að þjálfa íslenska landsliðsins, en samningur hans er til ársins 2029. Þá hefur liðið einnig samið við aðstoðarþjálfara hans Baldur Þór Ragnarsson og Viðar Örn Hafsteinsson til næstu fjögurra ára.
Síðasti samningur Craig var gerður árið 2022 og var til þriggja ára, en hann rann út núna eftir síðasta leik liðsins á lokamóti EuroBasket 2025. Hann hefur þó verið þjálfari liðsins frá árinu 2014 og hefur á þeim tíma í þrígang farið með liðið á lokamót EuroBasket. Eina mótið sem liðið missti af undir hans stjórn var árið 2022.
Undir hans stjórn hafa margir stórir sigrar unnist og hefur Íslandi tekist að vinna hverja stórþjóðina á fætur annarri í undankeppnum sínum s.s. Ítalíu í tvígang, Tyrkland, Georgíu og Úkraínu.
Kristinn Albertsson formaður;
„Við höfum verið mjög ánægð með störf Craig sem og þjálfaranna sem starfað hafa með honum undanfarið.
Það var því eðlilegt skref að hann og hans teymi héldi áfram með liðið. Næsta markmið okkar er skýrt en það er að komast upp úr riðlinum sem við erum í núna í undankeppni HM2027 en til þess þurfum við að vera meðal þriggja efstu liðanna í riðlinum. Með því tryggjum við okkur einnig sæti í undankeppni EuroBasket2029 sem hefst í nóvember 2027 án þess að fara í forkeppni að þeirri undankeppni.
Það eru spennandi tímar framundan og mikil tilhlökkun fyrir næstu leikjum bæði hjá körlunum og konunum. “
Craig Pedersen landsliðsþjálfari;
„Ég er mjög spenntur og ánægður að halda áfram sem þjálfari íslenska karlalandsliðsins. Liðið hefur sýnt stöðugar framfarir síðustu ár og leikmennirnir hafa verið stöðugt að bæta sig.
Samheldni liðsins og þeirra sem halda utan um liðið er sterk og ég er stoltur að fá að vera partur af þessum hóp áfram.“



