Semur til 2028

Fannar Hafþórsson hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild Fjölnis og er nú samningsbundinn félaginu allt til ársins 2028.

Fannar er uppalinn Fjölnismaður og hefur vaxið í að vera einn af lykilmönnum í meistaraflokki karla hjá Grafarvogsfélaginu. Hjá Fjölni ríkir mikil ánægja með að halda Fannari innan sinna raða til næstu ára og hlakka forráðamenn félagsins til að fylgjast með frekari þróun hans í gulu og bláu treyjunni.

Fréttir
- Auglýsing -