Haukar hafa gengið frá nýjum tveggja ára samningi við Sólrúnu Ingu Rósants Gísladóttur.
Sólrún, sem er þrítug, skilaði 7 stigum og 2 fráköstum að meðaltali í leik á síðasta tímabili og er jafnframt ein öflugasta þriggja stiga skytta liðsins.
Viktor þjálfari fagnar því að halda Sólrúnu sem hann segir styrkja breiddina mikið og vera frábæran karakter í hópnum. Sólrún sjálf kveðst afar ánægð í Haukum, með frábæra liðsfélaga og hlakkar til að gera sitt allra besta fyrir liðið á komandi tímabili.




