Semur í Laugardalnum

Ragnheiður Björk Einarsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við körfuknattleiksdeild Ármanns og mun leika með liðinu í Bónus deildinni á komandi keppnistímabili.

Ragnheiður gekk til liðs við Ármann um áramótin 2025 og reyndist liðinu mikilvægur hlekkur þegar það tryggði sér sæti í efstu deild, þar sem hún lék svo á nýafstöðnu tímabili.

Hún býr yfir mikilli reynslu en hún lék í fjögur ár í bandaríska háskólaboltanum auk þess að hafa spilað með Haukum, Breiðabliki og Grindavík hér á landi. Hjá Ármanni ríkir mikil ánægja með að halda þessari lykilkonu innan sinna raða fyrir átökin í Bónus deildinni og stendur til að tilkynna um fleiri leikmannamál á næstu dögum.

Fréttir
- Auglýsing -