Sænska landsliðskonan Ellen Nyström hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild Grindavíkur og mun leika áfram með liðinu á komandi tímabili. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Ellen þótti standa fyllilega undir væntingum á síðasta tímabili og var mikilvægur hlekkur í liði Grindavíkur, bæði á vellinum og sem leiðtogi. Hjá deildinni og meðal stuðningsfólks ríkir mikil ánægja með að hún verði áfram í gulu og bláu treyjunni á næsta tímabili.



