Ísarr Logi Arnarsson hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild Fjölnis og mun leika með félaginu allt til ársins 2028.
Ísarr Logi er uppalinn Fjölnismaður og er talinn einn efnilegasti leikmaður landsins í sínum árgangi. Fjölnismenn lýsa yfir mikilli ánægju með að hann verði áfram hluti af framtíð meistaraflokks karla hjá félaginu og óska honum innilega til hamingju með nýja samninginn.



