Sigurður Friðrik Gunnarsson, betur þekktur sem Siddi, hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna.
Samkvæmt tilkynningu sem birt var á samfélagsmiðlum félagsins mun hann áfram gegna hlutverki aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna ásamt því að stýra 1. deildar liði félagsins í kvennaflokki.
Sigurður gekk til liðs við Stjörnuna fyrir síðasta tímabil eftir að hafa starfað við yngri flokka þjálfun. Í tilkynningunni kemur fram að hann hafi stimplað sig vel inn í ÞG verk höllina og ríkir mikil ánægja í Garðabænum með að halda honum innan þjálfarateymisins fyrir komandi tímabil.




