ÍA hefur gengið frá samningi við Marinó Ísak Dagsson um að leika með liðinu á næstu leiktíð. Marinó Ísak er 19 ára gamall bakvörður sem þekkir vel til á Akranesi, en hann lék upp yngri flokka félagsins auk þess sem hann hefur spilað síðustu tvö ár með Breiðabliki.
Hjá ÍA ríkir mikil eftirvænting með endurkomu hans og er hlakkað mikið til að sjá hann láta til sína taka í AvAir höllinni í vetur.



