Semur á Akureyri

Þór á Akureyri hefur gengið frá samningi við Natalíu Mist Þráinsdóttur fyrir komandi tímabil. Natalía, sem er 177 cm hár bakvörður, er lýst sem metnaðarfullum og efnilegum leikmanni sem mun styrkja hópinn bæði innan vallar sem utan.

Hjá Þór ríkir mikil ánægja með komu Natalíu en forráðamenn liðsins telja að gott hugarfar hennar, mikill vilji til að bæta sig og sterkt keppnisskap passi fullkomlega inn í þá liðsheild og menningu sem verið er að byggja upp hjá félaginu.

Fréttir
- Auglýsing -