HomeNeðri deildir2. deild karlaSemja við Valentin Strukov

Semja við Valentin Strukov

Vestri hefur samið við spænska miðherjann Valentin Strukov um að leika með liðinu á komandi tímabili.

Strukov er fæddur árið 2000, er 201 sentímetri á hæð og býr yfir mikilli reynslu úr spænska boltanum eftir að hafa spilað um 205 leiki í Liga EBA og Tercera FEB, auk reynslu á Ítalíu. Á síðustu leiktíð lék hann með CB Almería á Spáni þar sem hann skilaði 8,9 stigum, 7,1 frákasti og 1,7 stoðsendingum á rúmum 23 mínútum að meðaltali í leik.

Forráðamenn Vestra binda miklar vonir við komu Strukovs, en honum er lýst sem öflugum og vinnusömum leikmanni í teignum og sterkum frákastara sem mun styrkja liðið verulega fyrir átökin fram undan.

Fréttir
- Auglýsing -