Þór Þorlákshöfn hefur samið við bandaríska leikstjórnandann Shawnteanna Tillman um að spila með kvennaliði félagsins á komandi keppnistímabili.
Tillman kemur beint úr bandaríska háskólaboltanum þar sem hún hefur verið í lykilhlutverki hjá Coker University. Hún á að baki glæstan háskólaferil; hún hlaut meðal annars heiðursnefningu í WBCA NCAA Division II All-America eftir síðasta tímabil og var árið á undan valin besti leikmaðurinn í NCAA Southeast Regional þegar Coker tryggði sér sæti í átta liða úrslitum (Elite Eight).
Hjá Þór mun Tillman stýra leik liðsins en forráðamenn binda miklar vonir við að hún verði öflugur leiðtogi í nýju kvennaliði félagsins í Þorlákshöfn í vetur.




