HomeFréttirSemja við Sadio Doucouré til tveggja ára

Semja við Sadio Doucouré til tveggja ára

Njarðvík hefur gert tveggja ára samning við Sadio Doucouré sem gildir út leiktíðina 2028.

Doucouré, sem er frá Malí og Frakklandi, þekkir vel til á Íslandi en hann lék með Tindastóli sem fór í lokaúrslit tímabilið 2024–2025. Þar skilaði hann um 17 stigum og 7 fráköstum að meðaltali í leik. Hann kemur nú frá Frakklandi þar sem hann hefur leikið lungann af sínum ferli, en hefur auk þess spilað í Kósóvó, Mexíkó og Túnis.

Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, fagnar komu hans og segir mikilvægt að hafa náð að semja við hann til tveggja ára eftir að félagið reynt að fá hann strax í desember á síðasta ári.

Fréttir
- Auglýsing -