Vestri hefur náð samkomulagi við spænska bakvörðinn Martín Fernández um að ganga til liðs við félagið. Hann mun bæði leika með meistaraflokki karla á komandi leiktíð og taka að sér þjálfun í yngri flokkum Vestra.
Fernández er fæddur árið 2003 og getur leyst af hólmi bæði stöðu leikstjórnanda og skotbakvarðar. Hann hefur undanfarin ár leikið á Spáni, meðal annars í Tercera FEB og Liga EBA, þar sem hann hefur getið sér gott orð og meðal annars verið á meðal bestu stoðsendingamanna í sínum deildum.
Forráðamenn Vestra binda miklar vonir við komu Fernández, en honum er lýst sem kraftmiklum keppnismanni sem leggi mikla áherslu á varnarleik, hraða og að skapa tækifæri fyrir samherja sína. Er vonast til að hann muni bæði efla meistaraflokkinn innan vallar sem og styðja við áframhaldandi uppbyggingu á yngri flokka starfi félagsins.




