Selfoss hefur samið við leikstjórnandann Mariana Duran um að leika með meistaraflokki félagsins í 1. deild kvenna á komandi keppnistímabili (2026–2027).
Duran kemur yfir heiðina frá Hamri/Þór þar sem hún lék í Bónusdeildinni á síðustu leiktíð. Þar lét hún mikið að sér kveða og skilaði tæpum 14 stigum, 7 fráköstum og 5 stoðsendingum að meðaltali í leik.
Hún er afar reynslumikill leikmaður, hefur spilað um árabil með landsliði Venesúela og leikið með félagsliðum á Ítalíu, í Portúgal og víðs vegar um Suður-Ameríku. Selfyssingar binda miklar vonir við komu Duran og bjóða hana hjartanlega velkomna í félagið.




