HomeBónus deildinBónus deild karlaSemja við lettneskan leikmann

Semja við lettneskan leikmann

Álftanes hefur samið við lettneska landsliðsmanninn Martins Laksa um að leika með liðinu á komandi leiktíð.

Laksa kemur úr efstu deild í Póllandi og er þrautreyndur atvinnumaður sem hefur leikið í efstu deildum á Spáni, í Þýskalandi og í Litháen, auk þess að verða meistari í heimalandi sínu. Hann á að baki fjölmarga leiki fyrir A-landslið Lettlands þar sem hann skoraði meðal annars 20 stig gegn Austurríki í síðasta landsliðsglugga.

Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Álftaness, segir Laksa passa afar vel inn í hópinn og mikinn feng í svo reynslumikinn leikmann.

Fréttir
- Auglýsing -