Breiðablik hefur samið við Adrian McIntyre um að leika með meistaraflokki karla á komandi tímabili.
McIntyre er 190 cm bakvörður sem kemur til Kópavogsfélagsins frá University of San Diego í NCAA Division I.
Tímabilið 2024–2025 vakti hann mikla athygli þegar hann varð stigahæsti leikmaður allra deilda NCAA háskólaboltans með 27,9 stig að meðaltali í leik fyrir Westmont College í 2. deild, auk þess að skila 5,3 fráköstum, 3,9 stoðsendingum og 2,1 stolnum bolta. Hjá Breiðabliki er honum ætlað stórt hlutverk og mun hann fyrst og fremst leysa stöðu leikstjórnanda.




