Haukar hafa fengið mikinn liðsstyrk fyrir átökin í 1. deildinni á næsta tímabili, en írski landsliðsmaðurinn Matt Treacy hefur skrifað undir samning við félagið.
Treacy er 28 ára gamall, 199 cm á hæð, og er honum lýst sem fjölhæfum framherja og öflugri skyttu fyrir utan þriggja stiga línuna.
Þessi öflugi leikmaður þekkir vel til á Íslandi en hann lék með Skallagrími á síðustu leiktíð og þar áður með Snæfelli.
Hjá Borgnesingum skilaði hann frábærum tölum; skoraði 18,6 stig og tók 5,6 fráköst að meðaltali í leik, með 60% skotnýtingu í tveggja stiga skotum og 38,2% í þriggja stiga skotum. Hjá Haukum endurnýjar hann kynnin við Alex Rafn Guðlausson, en þeir voru liðsfélagar hjá Snæfelli tímabilið 2024–2025.




