ÍA hefur gengið frá samningi við Hjalta Þór Vilhjálmsson um að taka við þjálfun meistaraflokks karla hjá félaginu.
Hjalti er stórt nafn í íslenskum körfubolta og býr yfir yfirgripsmikilli reynslu úr efstu deildum, en hann hefur áður stýrt liðum á borð við Álftanes, Keflavík, Val og KR. Ráðning hans þykir mikill hvalreki fyrir Skagamenn og er hún sögð vera stórt skref í þeirri vegferð að lyfta starfi félagsins á hærra plan á næstu misserum.
Með því að fá Hjalta í brúna stefnir ÍA að því að efla enn frekar það metnaðarfulla starf sem þegar á sér stað innan klúbbsins og byggja upp öflugt lið til framtíðar. Stjórn félagsins lýsir yfir mikilli ánægju með samstarfið og bindur miklar vonir við að reynsla hans muni nýtast leikmönnum vel í þeim verkefnum sem fram undan eru.




