Franski framherjinn Keylane Lasisi hefur samið við 1. deildar lið Snæfells fyrir komandi tímabil. Lasisi, sem er 198 sentímetrar á hæð, kemur frá Huntington University í Bandaríkjunum og getur leyst stöður framherja og miðherja. Honum er ætlað að styrkja liðið innan teigs og í frákastabaráttunni.
Nýi leikmaðurinn er þekktur fyrir mikla orku, sterkan varnarleik og góða liðsheild. Hann getur dekkað margar stöður á vellinum og hlaupið hratt upp í sóknir. Hólmarar fagna komu Lasisi og bjóða hann velkominn til Stykkishólms.




