HomeBónus deildinBónus deild karlaSemja við framlagshæsta leikmann Bónus deildarinnar

Semja við framlagshæsta leikmann Bónus deildarinnar

Franski miðherjinn Jordan Semple er genginn í raðir Álftaness og mun leika með liðinu á komandi leiktímabili. Semple hefur víðtæka reynslu úr atvinnumennsku víðs vegar um Evrópu og hefur komið sér vel fyrir á Íslandi frá því hann kom fyrst til landsins árið 2021.

Á nýafstöðnu tímabili fór hann á kostum og lék lykilhlutverk í að tryggja sínu liði Íslandsmeistaratitilinn, en hann var framlagshæsti leikmaður deildarinnar með 17 stig, 10 fráköst og 4 stoðsendingar að meðaltali í leik. Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Álftaness, fagnar komu hans og segir hann búa yfir miklum gæðum sem munu styrkja liðið verulega á báðum endum vallarins.

Fréttir
- Auglýsing -