Júlíus Hrafn Marteinsson og Sófus Kári Einarsson hafa skrifað undir sína fyrstu samninga við uppeldisfélag sitt, Fjölni.
Báðir hafa þeir leikið með Grafarvogsfélaginu allt frá minnibolta. Með samningunum taka þeir nú næsta skref á ferlinum með því að ganga formlega til liðs við æfingahóp meistaraflokks karla fyrir komandi tímabil. Hjá Fjölni ríkir mikil ánægja með að fylgjast með áframhaldandi vexti þessara ungu leikmanna í gulur og bláu.



