Ármann hefur tilkynnt að Auður Hreinsdóttir og Aníka Linda Hjálmarsdóttir hafi báðar endurnýjað samninga sína við félagið og munu leika með liðinu í Bónusdeild kvenna á komandi tímabili.
Aníka Linda hefur leikið með Ármanni frá sumrinu 2024 þegar hún kom frá Tindastóli, en hún lék áður með Fjölni og ÍR.
Auður hefur verið mikilvægur hlekkur í uppbyggingu kvennaliðs Ármanns og var meðal annars í stóru hlutverki þegar meistaraflokkur félagsins var endurvakin og tryggði sér sæti í efstu deild. Ármann fagnar því að halda báðum leikmönnum í sínum röðum fyrir annað tímabil sítt í Bónusdeildinni.




