Borgarráð Seattle borgar hefur samþykkt að veita styrk að upphæð 200 milljónum dollara til bygginar á nýrri íþróttahöll í borginni. Það er maður að nafni Chris Hansen sem kom með þá tillögu að byggja höll fyrir 490 milljónir dollara og nú hefur það verið samþykkt af borgarráði borgarinnar. Það gæti því allt eins verið að Seattle Supersonics verði til að nýju, mörgum stuðningsmönnum liðsins til mikillar hamingju.
Það var árið 2008 sem að Seattle Supersonics var selt og flutt yfir til Oklahoma og varð svo Thunder liðið. Þessi áform Chris Hansen áforma einnig að koma með íshokkýlið í borgina. Hansen þessi er uppalinn Seattle búi og hefur auðnast vel á því þegar hann fjárfesti vel og snemma í Facebook.
Fróðlegt verður að fylgjast með gangi mála á næstu árum og hvort Sonics nafnið rísi úr öskunni.
Mynd: Allir sem þekkja þennan riffil eiga að setja "Like" á þessa frétt með nafni skyttunar með.





