21:39
{mosimage}
Hið árlega páskamót, Scania Cup, hófst í dag í Södertalje í Svíþjóð. Þrjú íslensk lið taka þátt þetta árið, 9. flokkur Fjölnis og 7. flokkur KR og ÍBV. Íslensku liðin unnu tvo leiki í dag og töpuðu einum.
Fjölnisstrákar léku gegn norska liðinu Bergskamraterna og sigruðu 62-48. Róbert Sigurðsson var stigahæstur með 25 stig. Á morgun leika þeir tvo leiki gegn Vilpas frá Finnlandi og heimamönnum í Södertalje.
Í 7. flokki léku Vestmanneyingar gegn KTP og sigruðu 68-47 og á morgun leika þeir gegn danska liðinu Svendborg og gegn sænska liðinu JKS. Aron Valtýsson skoraði 20 stig og Sigurður Grétar Benónýsson 19.
KR strákar mættu heimamönnum í Södertalje og töpuðu 52-53 en á morgun leika þeir þrjá leiki, gegn danska liðinu Hörsholm, finnska liðinu Honka og sænska liðinu Jarva. Ekki er vitað hverjir skoruðu mest fyrir KR.
Nánar má lesa um mótið hér.
Mynd: krkarfa.bloggar.is




