spot_img
HomeBikarkeppniSautjándi bikarmeistaratitill Keflavíkur í höfn eftir sigur gegn Grindavík í Smáranum

Sautjándi bikarmeistaratitill Keflavíkur í höfn eftir sigur gegn Grindavík í Smáranum

Keflavík lagði Grindavík í Smáranum í kvöld í VÍS bikarúrslitunum, 92-83.

Leikurinn var seinni bikarúrslitaleikur dagsins, en fyrr í dag hafði KR betur gegn Stjörnunni í VÍS bikarúrslitum karla.

Fyrir leik

Á leið sinni í úrslitaleikinn hafði Keflavík lagt Hamar/Þór og Grindavík hafði betur gegn Tindastóli í undanúrslitunum.

Keflavík er sigursælasta lið bikarsögunnar með 16 titla í 25 ferðum í úrslitaleikinn. Grindavík er öllu neðar í þeirri töflu, í 5. sætinu með tvo titla.

Síðast varð Keflavík bikarmeistari fyrir tveimur árum, 2024, en síðasti bikarmeistaratitill Grindavíkur var árið 2015, þá unnu þær einmitt Keflavík í úrslitaleik, 68-61. Árið eftir er síðasta skipti sem þær voru í úrslitum, en 2016 töpuðu þær í þeim fyrir Snæfell.

Staða liðanna í Bónus deildinni nokkuð ólík þó ekki muni mörgum stigum á þeim. Grindavík er sem stendur í efsta sæti deildarinnar með 22 stig á meðan Keflavík er tveimur sigurleikjum fyrir neðan, en í 6. sætinu með 18 stig.

Liðin hafa mæst í eitt skipti á tímabili. Þann 28. nóvember hafði Keflavík nokkuð öruggan sigur á Grindavík í HS orku höllinni, 95-103.

Gangur leiks

Varla má á milli sjá á milli liðanna á upphafsmínútunum. Þau skiptast á körfum og fer forystan í fimm skipti á milli þeirra. Meðal annars með nokkrum þristum frá Thelmu Dís tekst Keflavík að skapa sér eilítið bil undir lok fyrsta fjórðungs, en munurinn að honum loknum eru sex stig, 27-21.

Keflavík virðist ekki getað gripið gæsina almennilega í öðrum fjórðungnum og Grindavík nær að skjóta sig aftur inn í leikinn. Abby Beeman leikstjórnandi þeirra stýrir skipinu eins og herforingi, þær minnka muninn, jafna og eru yfir þegar liðin halda til búningsherbergja í hálfleik, 45-47.

Fariyah Abdi þó stigahæst fyrir Grindavík í fyrri hálfleiknum með 22 stig og Abby með 12 stig. Fyrir Keflavík var stigahæst Keishana Washington með 18 stig og Thelma dís var með 8 stig.

Áfram er leikurinn hnífjafn í upphafi seinni hálfleiks. Fyrir Grindavík virðist Ellen Nystrom vera komast af stað eftir erfiðan fyrri hálfleik. Að sama skapi fer Sofie Tryggedson að setja skot fyrir Keflavík, sem taka forystuna aftur í fjórðungnum og leiða fyrir lokaleikhlutann, 70-60.

Mest fer Keflavík 12 stigum á undan í upphafi fjórða fjórðungsins. Grindavík reynir að komast inní leikinn aftur, fær tækifæri til þess þar sem Keflavík tapar boltanum trekk í trekk. Ná hinsvegar lítið að gera sér úr því. Þá ráða þær lítið við Keishana Washington, sem setur setur allskonar körfur fyrir Keflavík í leiknum.

Inn í brakmínútur leiksins leiðir Keflavík með tveggja stafa tölu. Því halda þær nokkuð örugglega og undir lokin er þetta aldrei spurning. Keflavík vinnur titilinn örugglega (öruggar en tölurnar kannski segja) 92-83.

Stigahæstar

Besti leikmaður úrslitaleiksins var valin Keishana Washington, en hún var með 36 stig, 8 fráköst og 11 stoðsendingar. Henni næst í Keflavíkurliðinu voru Sara Rún Hinriksdóttir og Angelina Turmel með 10 stig hvor.

Fyrir Grindavík voru atkvæðamestar Fariyah Abdi með 29 stig og Abby Beeman með 22 stig, 5 fráköst og 12 stoðsendingar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -