Gestirnir settu fyrstu fjögur stig leiksins þangað til Jón Arnór skorar fyrstu stig Íslands, 2-4. Eistland var að finna auðveldar leiðir í sniðskot í upphafi leiks og skoruðu þannig fyrstu 6 stigin sín. Þeir nýttu fyrstu fimm skotin sín í leiknum og leiddu 4-10 þegar rétt rúmlega tvær mínútur voru liðnar. Um mínútu síðar tók svo Ísland leikhlé í stöðunni 4-12. Haukur Pálsson hafði þá misnotað tvö víti og Jón Arnór tapað tveimur boltum. Eistar gáfu ekkert eftir og voru að spila feiknarvel, þeir voru komnir með 13 stiga forskot þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður, 4-17. Eistland fékk dæmdar á sig tvær sóknarvillur, tvær sóknir í röð sem Íslenska liðið nýtti sér vel og minnkaði muninn niður í 6 stig,11-17, en þar voru Helgi og Pavel að verki, báðir menn sem komu af bekknum eftir nokkrar mínútur. Eistland tók þá leikhlé með þrjár mínútur eftir af fyrsta leikhluta á klukkunni. Þetta leikhlé virtist þó hafa góð áhrif á gestina sem skoruðu næstu 8 stig leiksins og voru aftur komnir með 14 stiga forskot, 11-25. Skotin voru ekki að detta hjá íslenska liðinu og varnarleikurinn ekki nægilega ágengur því Eistar fengu oftar en ekki auðveld sniðskot eftir að hafa labbað í gegnum Íslensku vörnina. Ísland náði þá að rétta örlítið úr kútnum og skoraði síðustu 4 stig leikhlutans. Ísland hefði þó getað bætt tveimur við þar sem þrjú skot Íslenska liðsins á síðustu 8 sekúndum leikhlutans geiguðu, 15-25.
Þrátt fyrir nokkur tækifæri þá gekk illa að minnka forskot gestana í upphafi annars leikhluta. Gestirnir höfðu ekki skorað eftir tvær mínútur en Íslenska liðið hafði aðeins skorað tvö stig og því var fínn varnarleikur liðsins ekki að skila miklu. Á meðan Íslenska liðið var ekki að nýta skotin sín þá héldu gestirnir áfram að auka muninn og voru komnir aftu rupp í 13 stig þegar annar leikhluti var tæplega hálfnaður, 18-31. Það vantaði oft ekki mikið uppá að skotin færu ofaní en það vantaði þó alltof oft eitthvað. Eistarnir settu þrist á íslenska liðið stuttu seinna sem Ægir Steinþórsson svaraði um hæl, 23-34. Sem fyrr tók Ísland þó ágætis kafla og minnkaði muninn smám saman niður aftur. Jakob Sigurðsson minnkaði muninn niður í 9 stig þegar tvær mínútur voru eftir af fyrri hálfleik 27-36. Peter Öqvist fékk þá tæknivillu og sendi þar með Eistana á línuna. Þar klikkuðu þeir af báðum skotunum sem kveikti allhressilega í höllinni. Ísland fékk ógrinni af tækifærum til þess að minnka muninn, vörnin var að halda vel en liðinu tókst bara ekki að setja boltan ofaní körfuna. Þegar 26 sekúndur voru eftir af fyrri hálfleik var ennþá 27-36. Það voru svo Eistar sem náðu að skipuleggja sig og setja síðustu stig fyrri hálfleiks, 27-38.
Gestirnir byrjuðu betur í upphafi seinni hálfleiks og settu fyrstu 4 stig leiksins þangað til Hlynur skoraði fyrstu stig Íslands í hálfleiknum, 29-41. Sem fyrr gekk illa hjá Íslenska liðinu að setja boltan ofaní körfuna og Eistar þurfti ekki nema örstuttan góðan kafla til að gera Íslenska liðinu lífið leitt, 31-47. Peter Öqvist tók leikhlé fyrir Íslenska liðið þegar fjórar og hálf mínúta var eftir af þriðja en Eistar höfðu þá skorað 11 stig gegn 6 stigum Íslands og farið að líða á seinni hluta leiksins, 33-49. Eistarnir héldu uppteknum hætti næstu mínúturnar og hreinlega keyrðu yfir Íslenska liðið. Þeir gáfu ekki tommu eftir í vörninni sem virtist hreinlega vera of mikið fyrir þreytt lið Íslands. Þegar tvær mínútur voru eftir af þriðja leikhluta tók Peter Öqvist leikhlé en þá var forskot gestana komið í 24 stig, 35-59. Helgi Magnússon kom þá aftur inná eftir furðu langa bekkjarsetu og setti fjögur stig fyrir Íslenska liðið sem tókst þó ekki að fylla inní götin í vörninni og munurinn því ennþá sá sami, 42-64. Eistar áttu svo síðustu stig leikhlutans og munurinn stóð í 24 stigum, 42-66.
Íslenska liðið lét þó finna fyrir sér í upphafi fjórða leikhluta og fékk dæmdar á sig nokkrar villur í kjölfarið. Þeim tókst því að halda í við gestina og fengu tækifæri til þess að minnka muninn. Íslenska liðið var búið að fá á sig fjórar villur strax eftir rétt rúmlega tvær mínútur af leik, 50-72. Með þessum leik tókst Íslandi að minnka muninn örlítið og þegar fimm mínútur voru til leiksloka var forskot gestanna komið niður í 19 stig, 55-74. Hvorugt liðið gerði almennilega atlögu að því að breyta muninum á liðunum á næstu mínútum. Íslenska liðið hvíldi máttarstólpa á lokamínútunum og sýndi Helgi Magnússon þá mjög fínan leik í sókn sem vörn. Það þurfti þó meira til og Íslenska liðið tapaði á endanum með 19 stiga mun, 67-86.
mynd: Þorsteinn Eyþórsson






