spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2023Sara Rún hvetur alla til að mæta í Laugardalshöllina á morgun "Frábært...

Sara Rún hvetur alla til að mæta í Laugardalshöllina á morgun “Frábært hvað KKÍ er að gera í kringum þennan leik”

Íslenska landsliðið mætir Rúmeníu kl. 16:30 í Laugardalshöllinni á morgun í öðrum leik nóvemberglugga síns í undankeppni EuroBasket 2023. Um er að ræða seinni leik Íslands gegn Rúmeníu í riðlakeppni mótsins, en fyrri leiknum tapaði Ísland ytra í spennuleik. Fyrir leik morgundagsins hefur Ísland tapað fyrstu þremur leikjum undankeppninnar á meðan að Rúmenía hefur unnið einn og tapað tveimur.

Umgjörðin í kringum leik morgundagsins er ekki af verri endanum, en í kl. 15:00 hefst körfuboltahátíð í Laugardalshöllinni, þar sem í boði verða körfuboltaþrautir, lukkuhjól, andlitsmálun, plötusnúður og eitthvað fleira til þess að hita upp fyrir leikinn.

Hérna er heimasíða mótsins

Karfan kom við á æfingu hjá liðinu í dag og ræddi við leikmann liðsins Söru Rún Hinriksdóttur um tapið stóra á Spáni, hvernig það er að vera orðin reynslubolti liðsins, leikinn gegn Rúmeníu og hvernig það er að vera komin heim í Laugardalshöllina.

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -