Ísland mætir Serbíu á morgun miðvikudag 12. nóvember í fyrsta leik sínum í undankeppni EuroBasket 2027.
Leikurinn er annar tveggja í þessum fyrsta glugga keppninnar, en sá seinni er gegn Portúgal ytra á þriðjudaginn eftir næstu helgi, 18. nóvember.
Karfan kom við á æfingu hjá liðinu í dag og ræddi við lykilleikmann Íslands Söru Rún Hinriksdóttur um leikina tvo gegn Serbíu og Portúgal, uppgang liðsins í síðustu gluggum og leiðtogahlutverk hennar innan hópsins.



