Framundan eru örlagaríkir lokaleikir hjá strákunum okkar í körfuboltanum, en í byrjun júlí lýkur fyrri hluta undankeppni HM 2027. Fyrri rimman er spennandi heimaleikur gegn sterku liði Ítalíu nú á fimmtudaginn og er hægt að tryggja sér miða á Stubbi til að styðja við bakið á liðinu.
Beint í kjölfarið flýgur hópurinn til Manchester þar sem lokaatið fer fram gegn Bretum á þeirra heimavelli. Gríðarlega mikið er í húfi þar sem íslenska landsliðið verður að innbyrða sigur í þessum glugga til að tryggja áframhaldandi þátttöku og komast í næstu lotu keppninnar.
Karfan spjallaði við Elvar Már Friðriksson fyrir leikina mikilvægu.





