HomeÚti í heimiEvrópaSan Pablo Burgos úr fallsæti eftir flugeldasýningu Jóns Axels og félaga

San Pablo Burgos úr fallsæti eftir flugeldasýningu Jóns Axels og félaga

Landsliðsmaðurinn Jón Axel Guðmundsson fór fyrir sínum mönnum í San Pablo Burgos í dag þegar liðið vann gríðarlega mikilvægan heimasigur á Kosner Baskonia, 107:96, en með sigrinum tókst liðinu að rífa sig upp úr fallsæti deildarinnar.

Jón Axel átti mjög góðan dag, stýrði sóknarleiknum af öryggi og skilaði tíu stigum auk þess að gefa átta stoðsendingar í þessum mikilvæga sigri sem gæti reynst liðinu dýrmætur í botnbaráttunni framundan.

Fréttir
- Auglýsing -