spot_img
HomeFréttirSamstarf Njarðvík og Grindavík fyrir bikarslaginn

Samstarf Njarðvík og Grindavík fyrir bikarslaginn

Í dag eða réttara sagt á eftir munu stjórnir liða Grindvíkur og Njarðvíkur koma saman í Salthúsinu í Grindavík og grilla hamborgara ofaní stuðningsmenn liðanna beggja.  Þess má einnig geta að stórleikur í enska botlanum milli Man Utd og Chelsea verður í beinni á staðnum og því ekki ónýtt að henda í sig einum brakandi ferskum hamborgara fyrir leikinn stóra í kvöld.  Stuðningsmenn beggja liða eru velkomnir og ágóði af sölu borgaranna verður skipt bróðurlega milli liðanna tveggja.  Eflaust á eftir að myndast skemmtileg stemmning milli stuðningsmanna en svo kl 19:15 í kvöld er allt lagt undir. 
Grillið er tendrað kl 17:00 í Salthúsinu og herma sögur að Friðrik “Slow roast” Ragnarsson og Jón Gauti “Blitz-griller” Dagbjartsson verði aðal kokkar dagsins.  Fróðlegt verður að sjá hvort þeir kappar nái að líkja eftir þeim borgara sem fylgir þessari frétt. 
Fréttir
- Auglýsing -