Kevin Garnett í miðherja, Jason Kidd í bakvörð, Ray Allen í skotbakvörð, Tim Duncan og Elton Brand í framherja. Þetta byrjunarlið hefði ekki þótt dónalegt fyrir fáeinum árum en staðreyndin er sú að hér er um að ræða leikmenn sem eru samningslausir og gætu vel spilað saman á næstu leiktíð þó svo að líkurnar á því séu jafn miklar og að Bobby og JR Ewing semji frið.
Nú þegar tímabilinu er lokið hefur NBA.com birt hin árlega lista yfir leikmenn sem eru samningslausir og gætu valsað á milli liða ef áhugi sé fyrir hendi. Þó nokkur stórnöfn eru á listanum, en flest nöfnin eru þó að klára sinn feril eða leikmenn komnir af "léttasta" skeiðinu hvað körfubolta varðar.
Hægt er að skoða listann með því að smella hér, og hvetjum við lesendur að setja saman sitt byrjunarlið af listanum og senda á okkur á [email protected] með Subjectið "Free agent 5"