23:20
{mosimage}
Karfan.is tók þjálfara Blika og Grindavíkur í spjall eftir viðureign liðanna í Smáranum í kvöld. Grindvíkingar unnu öruggan 61-79 sigur á nýliðum Breiðabliks og aðspurður um framhaldið í deildinni sagði Friðrik Ragnarsson sig nauðbeygðan til að taka inn erlendan leikmann ef KR ætli sér að halda Jason Dourisseau áfram innan sinna vébanda! Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur:
Eruð þið að hleypa liðunum svolítið nærri ykkur eftir að hafa unnið upp gott forskot gegn þeim?
Við vorum bara ekkert að spila fallegan sóknarleik í kvöld en þetta var samt sannfærandi sigur sem var aldrei í hættu. Við spiluðum fína vörn og það er plúsinn í kvöld og í síðustu leikjum að við erum farnir að spila pínulítið betri vörn. Á móti kemur að flæðið í sókninni hefur ekki verið gott hjá okkur og sóknarleikurinn í kvöld var undir meðallagi hjá okkur.
Menn segja almennt að KR og Grindavík muni berjast um tvö efstu sætin í deildinni og ert þú ekkert að fara að sjá fram á það að ná í skottið á KR fyrr en þeir mæta í Röstina til ykkar?
Ég á bara fullt í fangi með að hugsa bara um mitt lið og get ekki verið að einbeita mér að KR en þeir eru að hökta eins og við en við hugsum bara út frá okkar bæjardyrum og um einn leik í einu. Reynum að bæta okkur og akkúrat núna finnst mér við ekki vera að spila okkar besta bolta en svona er körfuboltinn, þetta er upp og niður hjá þér en kosturinn við okkar leik í dag er að við náðum sigri.
Helgi Jónas Guðfinnsson hefur ekki verið með í síðustu tveimur leikjum, það er skarð fyrir skyldi!
Já, það veit það hver maður að það munar helling um Helga því hann er kominn í hörkugír og farinn að gagnast okkur eins og sá toppleikmaður sem hann er. Helgi hefur bara verið á námskeiði erlendis sökum vinnu en það hjálpar gríðarlega þegar hann kemur aftur.
Nökkvi er búinn að taka fram skóna, Guðlaugur er kominn aftur sem og Morten. Ætla Pétur Guðmunds og Gummi Braga og jafnvel þú að fara í búning á næstunni?
Nei, það held ég ekki! Reyndar ætlum við allir að taka fram skónna næsta föstudag þegar Grindavík B spilar í bikarnum en við komust ekki nærri Grindavíkurbúning en það.
Sérð þú fram á að önnur lið í deildinni geti nálgast Grindavík og KR á næstunni?
Jú jú, ég sé það alveg og sé hlutina jafnvel breytast. Ég get alveg ímyndað mér það að einhver lið eigi eftir að bæta við sig kana um eða eftir áramót því KR fer þá leið að halda sínum. KR er þannig að pína önnur lið til að taka sér kana en sjálfur hefði ég viljað sjá þetta kanalaust. Einhverra hluta vegna sér KR sig knúna til að hafa kana og það getur svo breytt mótinu helling hversu heppnir menn verða með kana. Það er borðleggjandi í stöðunni að það munu flest lið fá sér kana eftir því sem líður á mótið. Það er bara af því að toppliðið á Íslandi í dag sér tilefni til þess að vera með kana.
Mun Grindavík fá sér kana?
Ef KR heldur sínum þá mun ég örugglega vera tilneyddur til þess en ef KR lætur sinn mann fara þá er það bara ekki inni í myndinni.
{mosimage}
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Breiðabliks:
Vantaði allan neista í þína menn til að nálgast Grindavík í kvöld?
Ég veit það eiginlega ekki, 41-49 var það næsta sem við komumst í kvöld og það vantaði bara trú í upphafi leiks þar sem við gáfum þeim óþarflega mikið forskot. Jákvæðasta fyrir okkur var að við spiluðum fína vörn lengstum af og höldum einu af bestu sóknarliðum deildarinnar í 79 stigum í kvöld. Fullt af stigum Grindavíkur komu í pressu en annars fannst mér vörnin okkar á hálfum velli mjög góð.
Þú ert með þétta bakvarðasveit, varðstu fyrir vonbrigðum með bakverðina og hvernig þeir leystu úr pressunni?
Nei ekkert bara bakvarðasveitina heldur allir því það vantaði trú á þetta og vera sterkir á boltann. Við erum búnir að sýna það á erfiðari vettvangi en hér heima að við getum leyst pressu ágætlega. Ég var ekkert vonsvikinn þannig lagað með einhverja einn eða tvo í hópnum því liðið sem heild var ekki að vinna nægilega vel saman og við töpuðum einhverjum 10 boltum í fyrri hálfleik en þeir voru allir mjög dýrir.
Sjálfstraust! Er það eitthvað sem vantar í leik Blika?
Eigum við ekki bara að segja að það sé búið að vera upp og niður. Það var kannski ekki nógu mikið af sjálfstrausti í okkar leik í dag og of mikil virðing fyrir andstæðingnum.



