
Sævar Sævarsson leikmaður UMFN varð fyrir því óláni í gær að fá slæmt högg á handarbak sitt sem varð til þess að hann þurfti að fara af leikvelli. Skömmu síðar yfirgaf hann íþróttahúsið til sjúkrahúss bæjarins í röntgen myndatöku. “Þeir sögðu að það hefði ekki sést neitt brot í þessari myndatöku áðan (í gærkvöldi) en ég mun fara á morgun í Reykjavík og láta mynda þetta betur.” Sagði Sævar í samtali við Karfan.is






