Litháar unnu sannfærandi 20 stiga sigur á Bretum í dag, 105-85, og hafa þar með tryggt sig áfram í undankeppni HM 2027. Þessi úrslit einfalda dæmið mikið fyrir íslenska landsliðið.
Krafan fyrir leik kvöldsins því skýr: Sígur tryggir Íslandi farseðilinn í næsta stig keppninnar strax í kvöld.
Ef allt fer á versta veg í kvöld fær liðið hins vegar annan séns á sunnudaginn, en þá mætir Ísland Bretum í hreinum úrslitaleik á þeirra heimavelli.





